If you can dream it you can do it!

11.11.2007 09:49:06 / emmabkh

komin í samband við bullið aftur ;)

Netið er komið!! Vúúhúú ;)

Komin í samband við siðmenninguna!!

Ég fékk smá vinnu í síðustu viku..var að vinna á leiksskóla 4 daga, en þetta er bara sona afleising...þannig ég er ekki viss hversu mikla vinnu ég fæ þar...:/ soldið pirrandi...een maður verður bara að halda áfram að leita ;) vera jákvæður með þetta allt saman ;) hehe

Ég er reindar orðin pinu veik nuna...með hálsbólgu og leiðindi...held það sé útaf krökkunum á leiksskólanum þau eru öll með kvef...:/

Hrefna Bóel kom í heimsókn til okkar á föstudaginn ;) ægilega kósý ;) gaman að sjá skvísuna ;)

það er alveg kominn skíta kuldi úti nuna...þannig ég er hætt að geta verið útá peysunni nuna...gat það alveg þangað til fyrir sonna viku...but not anymore...hehe

Een í gær var boldspilstævne uppí lýðháskóla..og Atli og strákarnir úr hans árgangi voru með lið og spiluðu Handbolta fótbolta og blak...bara allsvakalega aktívir ;) Svo var svaka partý niðrí skóla..een ég var alltof slöpp til að fara...þannig ég sendi Atla greiið einann...hehe, en hann var með so mikið af strákum þarna þannig það var alltílagi ;) hehe

Sísí og Maggi voru með innflutningspartý í gær lika og þar sem þau búa nú í sama húsi og við þannig ég kíkti aðeins á þau það var 80’s þema! algjör snilld;) allir í ægilega fínum búningum!

Davíð og Elvar fá sammt sérstakt hrós fyrir brjálæðislega fallega jakka!

Við fórum lika í drykkjuleik sem endaði með að Maggi þurfti að strippa og Diddi þurfti að dansa ballet i hálfa mínutu ber að ofan með innlifun...þetta var sjúklega findið...þeir eiga framtíðina fyrir sér í þessu karlarnir ;) hehe

Sísí var líka að brillera í 80’s lögunum...sérstaklega TURN AROUND...every time..you get a little bit closer...bla bla bla....turn aroun right now! Hún var gjööörsamlega að missa það á tímabili ;) haha snillingur ;)  

Svo í dag er bara chill held ég..Atli er enn sofandi  og ég er bara að horfa á imbann ;)  allavega ekkert planað ;)

Annas gengur bara voða vel hjá okkur hénna í baunalandinu og eina sem vantar núna er eiginlega hjól fyrir mig...:/ ægilega dýrt að kaupa solleiðis..en það er alveg nauðsinlegt að eiga hjól! ;)  

Eeen æj ég man ekki meira til að segja núna..þannig það verður bara meira næst ;) og ég set svo bráðum inn myndir og sonna frá fyrsta mánuðnum hér í dk ;)  læt ykkur vita ;) 

 Ciao

Emma ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 12:55:18 / emmabkh

ekki mikid ad gerast ennta...:/

Vi er røde vi er hvide...vi står sammen sid om side...hehe

jæja eskurnar...ekki mikid ad gerast i vinnumalum hja mer...ekki nogu gott...æj eg var a sona afleysingar skryfstofu i fyrradag og a ad buast vid simtali eda smsi bara hellst i gær...en tetta tekur sma tima ad fara i gegnum hverfid og sonna...vona eg geti sammt bradum farid ad vinna.. ;)

annas gengur allt rosa vel henna i baunalandinu ;) enginn snor kominn ennta her..hehe bara ennta 10 stiga hiti og voda litid vedur eithvad ;)

"jolasnjorinn" er ad fara koma a føstudaginn sammt ;) tad er semsagt jolabjorinn er ad koma i budirnar og ta er okeipis bjor utum allt og rosa stemning nidri bæ ;) vid Atli ætlum adeinst ad skreppa a tad allavega ;)

i gær var eg i køkubodi/ eda atbodi..matarklubb..gøllateiti hehe whatever you wanna call it ;) hehe tad er alltaf gaman ;) var med Gerdi, Osk,Sisi, Irisi og Elfu ;) soldid findid ti , Gerdur, Osk Iris og Elfa bua allar i sama husi med kærustunum sinum ;) alltaf party og gaman hja teim ;) en so bumum vid Sisi saman i husi med okkar køllum nattla ;) hehe tannig tetta er mjøg hentugt ;)

Atli er nuna soldid upptekin i skolanum og voda duglegur ad læra tessi elska ;) eg veit eg er pinu skritin en eg væri alveg til i ad vera bara i skola lika..hehe.. ;)en madur verdur nu ad njota tess ad turfa ekki ad vera med profkvida ein jol a æfisinni til tessa ;) hehe hafa allir gott af ti er taggi ;)

jæja...eg hef i raun ekki mikid ad segja tannig lagad...bara ad allt gengur vel og vid buina ad koma okkur agætlega fyrir og vona ad allir hafi tad gott heima ;)

og ja so faum vid netid 7.nov ;) tannig tad stittist ;) (er a bokasafninu nuna...hehe)

allavega hava a good one ;)

miss you ;*

Emmy


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 12:23:19 / emmabkh

SORRY..EKKKERT NET ENNTA HEIMA..:/ HEHE

jæja elskurnar...

afsakid hle..tad er ekki enn komid net heima...tannig eg er a bokasafninu nuna adiens ad komast i samband vid umheiminn aftur ;) hehe

tetta verdur bara stutt i bili, og tegar vid faum netid kem eg med almennilegt blogg eg lofa :D og myndir og sonna af nyja slottinu ;)

en eg er komin med nytt danskt numer, +45-29477741 ;) allir ad seifa ;) hehe

tad gegngur allt rosa vel herna og nuna er eg bara ad byda eftir dønsku skilriki (sem er i postinum) til ad geta byrjad ad vinna ;) og ta fer tetta allt ad rulla ;)

en sakna ykkar sammt natturulega ;)

og vona tid hafi tad gott ;)

kv.Emma Baun ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 17:57:16 / emmabkh

aaaaand action!

Jæjaaa... ;) 

Þá er bara komið að þessu, á morgun er ég að fara flytja til Århus og verð þar vonandi næstu 4 árin ;) (kem nú sammt heim um jólin og sonna ;) hehe ) Það er svakaleg spenna í gangi!!

Hlakka alveg óendanlega mikið til að hitta Atlann minn ;) það er náttúrulega soldið skrítið lika að vera flytja að heimann í alvörunni í fyrsta skipti frá mömmsu, en maður verður að vera fullorðinn einhvertímann ;) hehe

Og auðvitað á ég eftir að sakna stelpnanna ótrúlega mikið! En þær verða bara að vera dúglegar að hafa samband og koma í heimsókn ;) hehe og ég lika náttla ;)  

Ég er búin að vera í algjööörum rússíbana í dag...er búin að vera á milljón og fara 2 og lata lita á mér hárið!!...Ég gerði heiðarlega tilraun til að lísa það...í fyrradag..og það tókst ágætlega...nema var soldið rauðleitt frá miðju og niður...og þannig ég fekk að koma aftur í dag að láta laga..en nei nei...í dag varð það APPELSÍNUGULLT!!!

Og þá er e´g ekki að ýkja...ég fékk áfall...og þetta er ekki gott fyrir mig þar sem hárið mitt er mér mjöööög mikilvægt!! Een þegar mamma sá hárið mitt brunuðum við aftur á hárgreiðslustofuna og það eina sem hægt var að gera var að lita það aftur dökkt..:( eeen allavega fer það mér vel...annað en appelsínugula hárið mitt...:/ hehe þannig núna er ég með súkkulaði brúnt hár voða flott á litinn...en næsta tilraun við ljósu lokkana verður tekin vonandi um jólin...og fyrir stittra komna eins og mig..sem vissu ekki að

BÚÐA LITIR ER MARGFALLT STERKARI EN STOFU LITIR ÞANNIG AAAAAALDREI LITA MEÐ ÞEIM NEMA ÞIÐ ÆTLIÐ AÐ VERA DÖKKHÆRÐ AÐ EYLÍFU! HeheÉg geri það allavega ekki aftur...

átti að vera sonna redding meðan maður var í lýðháskólanum...en sú redding endaði að vera dýr...Aaaallavega nú vitið þið þetta esskurnar ;) hehe

 Ég á eftir að sakna ykkar allra alveg ægilega mikið og hlakka til að sjá ykkur um jólin!!

Endilega bara vera dugleg að hringja og so náttla msn...er með sama númar og síðast ;) 

  EmmZý ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 12:48:39 / emmabkh

AFSAKIÐ HLÉ!

JÆJA...VILDI BARA SEGJA AFSAKIÐ FYRIR AÐ NENNA EKKI AÐ BLOGGA Í ALLT SUMAR ;) HEHE

BYRJA AFTUR ÞEGAR ÉG FLYT ÚT Í OKT ;)

SÍJÚ ÐEN ;)

STAY TUNED ;) HEHE

EMMZÝ ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 19:46:12 / emmabkh

mímímímímí...:Þ

Loooong time no see...Er alveg ægilega léleg við að blogga á sumrin...Smá punktar... 

·         sumarið er búið að vera gott ;)

·         ég elska þetta veður!

·         Ég er búin að fara í útilegu!

·         Það var æði!

·         Soldið mikið af mýflugum...hehe

·         Ég er núna sonna sirka aðrahvora helgi á selfossi ;)

·         Mér finnst það ýkt kózý!

·         Reyndar er Atlinn minn að fara vera 2 helgar í röð núna hjá mér;)

·         Mútta er ekki heima..

·         Ég hlakka geggjað til að flytja til DK aftur!!

·         Erum byrjuð að sækja um kollegie ;) jeyj ;) hehe

·         Ég fór í sund um daginn á selfossi!

·         Það er kraftaverk...hehe

·         Ég hef ekki farið í sund á íslandi síðan 1700 og súrkál...

·         En kva gerir maður ekki fyrir ástina sína ;)

·         Atli er búinn að hitta pabba lika núna...

·         Hann fékk mjööög gott samþykki ;) hehe

·         Við fórum í innflutningspartý hjá ingunni og garpi á laugardaginn!

·         Það var mjög gaman ;)

·         Takk fyrir okkur ;)

·         Við gáfum þeim örbylgjuofn með þóru og Einari ;)

·         Sem ég var að muna núna að ég ætlaði að leggja inn á þóru ;) haha

·         Búin að því..hehe tjékk ;)

·         Næsta helgi verður held ég bara sonna slaki á og hitta vini helgi ;)

·         Hlakka til að fá Atla á föstudaginn ;)

·         Þóra er að koma á eftir í heimsókn ;)

·         Kannski ingunn lika ;)

·         Ég ætla að hringja í ingibjörgu...

·         Hehe

·         Tékka kva hún er að gera...;)

·         Nenni ekki meir ;)

·         Meira seinna ;)

·         Bæjó

·         Emmzý! ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 21:07:48 / emmabkh

when the sun shines we shine together ;)

Ekkert voooðalega dúgleg að blogga þessa daganna..:/ 

Allavega... Atlinn minn kom heim föstudaginn 22. og ég fór að sækja hann á flugvöllinn og var alveg að deyja úr spenningi! Ég var alveg kominn með sommerfugl í magann ;) hehe

Það var geggjað að sjá hann ;)

við brunuðum beint á selfoss ;) mín að hitta tengdó í fyrsta skipti ;) var pinu nervus..hehe en ég held þetta hafi bara gengið vel ;) þau eru snillingar ;) og Þórunn (litla systir hans Atla) er algjört æði ;)  ég skemmti mér allavega mjög vel um helgina ;)

  Svo er maður bara búin að vera vinna og Mútta var so spennt að fá að hitta Atla lika (strákurinn loksins kominn á klakann) þannig hún bauð honum í afmælismat hjá Pálma (kæró) á þriðjudaginn;) og þá er Atli lika búinn að hitta helminginn af tengdó ;) hehe og það gekk bara rosa vel ;) drengurinn klikkar náttla ekki ;) hehe

Svo er það bara meiri vinna í góðaveðrinu (sjö níu þrettán ;) ) Vona það verði sonna gott á morgun lika og kannski eithvað framm á helgi ;) við erum að fara í útilegu rétt hjá apavatni ;) eða monkey lake ;) (emma auli;) ) erum að fara á sonna míní ættarmót hjá Atla famelíu ;) soldið spennó ;) Ég hlakka allavega til !! elska útilegur og keyra smá útá landi og sonna ;) love it ;)

  Jæja ætla að fara njóta sumarsins ;) hehe

afsakið ef ég verð eithvað léleg við að blogga í sumar ;) reyni sammt að henda einhverju inn annaðslagið ;)

  Bæjó í bíli ;)

 EmmZý ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 19:07:57 / emmabkh

Já ég segi það satt..en þú trúir ey glatt...þvííí ég er afi minn... :)

er búin að setja inn fullt af Allskonar myndum frá DK ;) endilega skoðið og commenta jáh ;) hehe (er hénna til vinstri neðarlega í aarhus dálknum ;)  

Punktablogg... 

·         Búin að vera á Djöflaeyjunni í 2 vikur á morgun!

·         Er ekki alveg að sætta mig við að vera hér í kuldanum :/ hehe

·         Atli kemur heim eftir eina viku!

·         Hlakka ægilega mikið til! ;)

·         Fór pínu að djamma síðasta laugardag...

·         Skemmtilegt partý..

·         Leiðinlegt í bænum sammt..

·         Fór snemma heim ;)

·         Er í soldið miklu kósý skapi þessa helgina...

·         Langar ægilega mikið að flitja til Aarhus! Hellst í gær...

·         Vona að það verði að því ;)

·         Kemur allt í ljós...

·         Sálfræði ?

·         Félagsfræði?

·         Félagsráðgjöf?

·         Hvað á ég að velja til að læra?

·         Ég og Atli erum búin að vera saman í 5 mánuði á morgun ;) jeyj ;*

·         Er að fara hitta Ingunni og ingibjörgu á ettir ;)

·         Kva á maður að gera á 17.júni...

·         Ætli það verði Rigning..??

·         Uuu já!

·         Það er einhver að saga járn með vélsög fyrir utan hjá mér....

·         Er að verða brjál...á þessum hávaða og vondri lykt :/ hehe

·         Ég vill ekki verða hvít aftur..

·         Það er ekki nóu mikil sól hénna...

·         Hehe

·         Ég hef ekkert ða segja

·         Ekkert spennandi að gerast þessa daganna...

 

bæbæbæ

EmmZý...;)

 

 

ps.sakna þin astin min:*

nokkrar myndir héðan og þaðan ;)

Elvar,Atli og Ósk á snilldar tónleikum sem við fórum á í aarhus ;)

Sigríður vann Eggaldin á Tombólu í DjursSommerland ;) var ægilega ánægð með hann ;) haha og hann var skírður Sóbías ;)

við vorum OFUR svalar í klæðaburði eins og sjá má ;) hehe það ringdi pínu ;) og þessi rennibraut til hliðar var SNIIIIIILD ;) Hún heitir Speedy Gonsales ;)

maður var ægilega fínn í Bryllupfestinu ;) (var sonna gervi brúðkaup) smá pósa til að hafa í nesti ;)

ég sakna Lise!! :/

Ég og Atli fórum niðrá höfn á síðasta deginum mínu :) í smá göngutúr og skoðuðum fullt af herskipum sem voru "parkeruð" í höfninni yfir helgina ;) (20 stykki)

soldið magnað ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 20:54:42 / emmabkh

skrítin, skrítnari, skrítnust....

Jæja...þá er maður búin að vera í viku á klakanum (á morgun) og alveg að drukkna í sjálfsvorkun hehe, og auðvitað langar manni strax aftur út! Núna er sumarið alveg komið þar 25 stiga hiti og sól alla daga! Og ég er búin að vera vinna 9 tíma á dag í grenjandi rigningu og roki ÚTI :/ hahaha ein ógisslega bitur.. ;)

en nei það var gaman að koma heim og hitta alla ;) en bara ef að meðalhitinn á þessu landi væri sirka 10 gráðum heitari þá væri þetta nú bara alltí lagi ;) hehe

 Núna er líka “bara” 2 vikur þangað til Atli kemur heim (mér finnst það ægilega langt hehe) :Þ eeen þetta lýður vonandi hratt ;) sakna hans alveg ægilega mikið!! :* 

Ég er búin að vera mjög skrítin síðan ég kom heim lika...er eithvað dofin..trúi eiginlega ekki að þetta sé allt búið...en sonna er lífið víst,

 Mig langar alveg rosalega aftur út að læra i aarhus. Er reyndar orðin of sein til að sækja um fyrir þetta haust og janúar, en mig langar sammt að fara sem fyrst og þá bara vinna þangað til ég get sótt um og farið kannski í dönsku skóla til að ná þessu blessaða tungumáli alveg ;)

 Ef allt gengur upp þá verður vonandi af þessu ;)En það er margt sem spilar inní, en maður heldur bara í vonina ;) !! 

En ætla bara að hafa etta stutt...hef í raun ekkert að segja þannig...Var bara alltof lagnt síðan síðast ;) 

 EmmZý...


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 07:59:55 / emmabkh

ég hef ekki fengið slíkann kökk í halsinn síðan geitaosturinn stóð í mér um árið... ;) haha

Jahá...það er bara ekkert annað....        EKKI Á MORGUN HELDUR HINN....  þá verð ég bara mætt á klakann...:/ soooldið skerí tilfinning... en hlakka sammt til ;) hlakka til að hitta alla ;)  en þetta er búið að vera svo geggjað gaman hénna í Aarhus! það er bara ekkert hægt að lýsa því;) og ég vona ég flytji hingað aftur í janúar ;) (þarf að vinna fram að jólum ;) hehe  maður er pínu blankur þessa daganna ;) en svo kemur Atli líka heim eftir 3 vikur..á eftir að sakna hans dáldið mikið á meðann! en það er bara að vona að þetta lýði hratt ;) hehe maður er soo mikil mús stundum ;) hehe

eeen nenni þessu ekki núna ;) hehe hlakka til að sjá ykkur elsurnar :*

EmmZý ;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 15:23:19 / emmabkh

húhh...slöknaði á mér...!

Halelúja...

Aaaaaaaaallltooooof lítið eftir af skólanum...:/ það er bara ein venjuleg vika...og svo er sonna öðruvísi vika og so bara búið...ó mæ lllordý...Jæja...langaði að setja smá myndaserju hénna...bara sonna í tilefni af þessu ;) hehe

Svo eru nokkrar myndir frá Beach Partýinu sem var á miðvikudaginn ;) mjöög gaman en hefði verði geggjað hefði ekki verið GREEEENJANDI RIGNING AAAALLAN DAGINN ;) HEHE en ég meina við létum það ekkert stoppa okkur ;)

 

 

 

sonna eru dagarnir í aarhus... 

ein ég sit og hugsa...inni litlu húsi... einn daginn réðumst við á greyið Hrannar og vöxuðum á honum upphandleggina..hehe  förum stundum að horfa á fótbollta með SF.Heklu ;) hehe

 stundum leiðist okkur á life café...þegar fólk sem er ekkert obboslega gott að syngja er að gera það...hehe 

stundum er líka obboselga gott að lúlla útá grasi ;) hehe (sigríður og Kristín maría )

ahh jáh fórum til álaborgar á beyoncé og stoppuðum fyrst og fengum okkur kokteila ;) nammi gott ;)

Kristín Ananananananas ;)

við borðum mjööög mikið Kylling Kebab :)

hehe það kemur fyrir að við dönsum útí strætoskíli ;)

mamma sendi kókópuffs út :) NAMMIIIII!!! SHJÆSE KVAÐ VIÐ HÖKKUÐUM ÞAÐ Í OKKUR :) HAHAHAHAHA

Hrannar og "konan" hans Recardo elda stundum saman ;) haha krútt ;)

niðrí bæ ;)

stundum er maður náttla bara of svalur lika ;) hehe

já það kom dáldið mikill snjór í nokkra daga...hehe

átfittið sem Sigríður var í Sló all svakalega í gegn í Beach Partýinu!!! hahahahaha djöfull ertu lekker elskan ;)

það var Volley mót..fólk var í mistöff fötum...hehe

eins og ég segi!! þá var Sigríður Laaang flottust ;) hahahahaha

það var sonna slide dæmi :) haha bara snilld ;) pínu kall ;)

eins og ég segji...Greeeenjandi rigning...og svo var sonna uppblásin sundlaug hinumegin og það var verið að henda fólki þar ofaní allan daginn...og sumir fóru bara sjálfviljugir því þeir voru kvortið er svo blaut!!

Lise og Mikkel eru soo mikil krútt ;) hehe

svo varð maður náttla að fá að prófa brillurnar ;)

þetta er semsagt sundlaugin góða ;) hehe þessir hoppuð sjálfir ofaní eftir að hafa hennt stelpu þanna ofaní..hehe og annar þeirra var með fullt af seðlum í vasanum...:/ mjööög gáfað fólk ;) hahaha

hahahaha Sigríður, Martin og Lennart lentu i Smá Vandpistol stríði!!! á dansgólfinu bæ ðe vei ;) hahaha

hahaha þetta byrjaði vel fyrir Sigríði....eeen svo enduðu allir jafn blautir ;) hehe

hehe mér finnst þessi taka sig mjööög vel út með Gítarinn sko ;) mwha ;*

og svo ein af BEYONCÉ ;) HEHE djöfull var etta geggjað ;)

en jæja...þetta er orðið aaaalltof lagnt!!!

en ég vill komment já takk ;)

love jú gæs ;) mwha;*

EmmZý ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 08:18:05 / emmabkh

sjabbalú....

Kvefið endalausa....

Jæja núna er ég búin að vera með kvef og leiðindi í rúmlega viku...svaðalegt fjör..hehe

Eeen það er alveg slatti búin að vera gerast hénna....alla síðustu viku og um helgina var voða gott veður sól og skemmtilegt ;) en svooo sunnudagskvöldið byrjaði að koma rigning og leiðindi...og er búið að vera soldið sjabbí síðan...og meirað segja á mánudaginn kom RISA haglél !!  vorum ekki alveg að fíla það sko...hehe

Aaallavega Rakel Esskan ákvað að kíkja í heimsókn til min og kom á fimmtudagskvöldið ;) við skelltum okkur á smá tjútt fórum fyrst allir ísl. Krakkarnir til Atla og so lá leiðin niðrí bæ ;)

Daginn eftir var allllltoof mikil þynnka í gangi hjá mér... :/ það var ógeð...En ég, Atli og Rakel fórum bara og settumst í Ráðhúsgarðinn og slökuðum aðeins á..í góðaveðrinu ;) Það var kvortið er allt lokað þennan dag...þí þetta var einhver stór bænadagur...voða heilagt hjá dönum...;)

Ætluðum so að fara eithvað að tjútta um kvöldið en það voru allir eithvað so  tussulegir...að það endaði bara í rólegheitum...;) 

Við fórum svo á BEYONCÉ!! Tónleika á laugardeginum í Ålborg sjæse kvða það var mikil snilld!!! Við komum frekar snemma til álaborgar til að skoða aðeins bæjinn og sonna og fórum á mexicanskan veitingastað og fengum mjög góðan mat ;)

So lá leiðin að tónleikahöllinni...og þegar við komum var RÖÐ...nei nei ekkert 20 manna röð neitt....röðin var án gríns sonna KÍLÓMETER!! Ég hef aldrei séð sonna langa röð....(vó búin að segja röð soldið oft í þessari setningu...hehe)

\"\"

Aaaaallavega...Íslendingarnir sem við erum....ákváðum að mjööög svo íslenskum sið að troða okkur bara framalega í röðina ;) hahaha og það tókst sonna líka príðisvel ;) vorum mjööög smoooth about it ;) hehe

En þessir tónleikar voru bara snilld og hún gerði allt pörfekt það var ekki ein feilnóta hjá gellunni og hún dansaði á milljón og sjö allan tímann!! Geggjaður bakrunnur og töff búningar...skipti örugglega um sonna 7 sinnum!!! Og svo tók hún Destenys child syrpu sem var bara gargandi snilld ;) þannig í raun vorum við að slá tvær flugur í einu höggi sko ;) hehe

 \"\\"\\"\"Á sunnudeginum fórum við Rakel til Köben og hlupum upp og niður strikið ...því við ætluðum að vera aðeins fyrr á ferðinni...eeen svo fórum við í tívolíið sem er náttla alltaf gaman ;) en það var því miður ekki mikill tími til að vera þar..svo þurfti ég að drífa mig í lestina aftur klukkan 6 og rakel fór þá uppá flugvöll;)

Eftir mjööög langa og batteríslausan ipod lestarferð....fór ég til Atla og kúrði þar þangað til daginn eftir og fattaði þá að ég var ennþá lasin...:/ hehe ooog er það enn...hehe

   Svo núna er vikan sem ég og Sigríður köllum “Yfirgefum Siggu og Emmu vika..” því á Þriðjudaginn fór Ingbveldur elskan heim og í morgun fór Hrannar heim og á Laugardagsmorguninn fara Kristín og Lilja heim :/ við erum ekki avleg nóu sáttar með þetta!!!Allir að fara frá okkur....heim á klakann... 

En svo er ekkert svakalega langt í að ég kem heim...sirka 3 vikur ;)

 Ég er so innilega að vona það verði gott sumar í sumar ;)

plííís

 En æji nenni essu ekki lengur...ég er svöng...hehe 

Miss jú gæs :* 

 Hej hej

EmmZý ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 19:32:02 / emmabkh

STEINBÍTUR!!! a.k.a. Þóra Margrét Jónsdóttir ;)

Meðstofnandi Kólarjóma.is skrifar... 

Steinbítur þetta er bara fyrir þig!! Bwahahhahahahahahah Þóra! við erum náttla baaara snillingar sko! ;) hehe 

Eeeen æji fyrirgefiði elskurnar kva maður er lélegur að blogga eithvað....það er bara sooo erfitt að hanga inní tölvunni þegar það er sonna BONGÓ BLÍÐA hénna í baunalandinu ;) ég er mega sátt með þetta veður ;) missti mig sammt aðeins í sólbaði í dag...og ég er.... eins og Sturla mundi orða það...alveg eins og Fokkíng PAPRÍKA í framan ;) hahaha æjæj en what the hell...ég kauptaði fullt af aftersun áðann ;)   

En það var rosa stuð um helgina ;) Eins og so oft áður....

Á föstudaginn fórum við á handbolta leik hjá liðinu hennar Úllu sem einn kennarinn í skólanum er að þjálfa ;) (jakob S.)

 so eftir það bauð jakob uppá bjór og tilbehör ;) hehe fórum a einhvern svakalega kósí bar fyrir ofan sonna kappreiða (hesta) svæði ;)

svo fórum við í bæjinn en ég stoppaði reindar stutt þar og fór og hitti atlann minn ;)

 Svo á laugardaginn fórum við íslensku stelpurnar að horfa á íslenska fótbolltaliðið “Hekla” spila leik (bæ ðe vei þá eru t.d. Atli og Hrannar  i´þessu liði ;) hehe ásammt nokkrum öðrum sem við þekkjum líka ;) og auðvitað RÚSSTUÐU þeir leiknum 7-0 !! allt okkur stelpunum að þakka ;) hehe  

við vorum so rossalega dúglegar að stiðja liðið með að kaupa Bjór og solleiðis ;) hehe græddu helling ;) hehe 

Svo eftir leikinn fórum við og skelltum okkur á makkarann...eins og stundum þegar það er vont í matinn heima ;) hehe

Og so var ökkur boðið í TUSSU afmæli...:/  ég var mjög lengi að sætta mig við það að Tösser þýðir bara “stelpur” á dönsku...mér finnst það frekar asnó...hehe

allavega tvær stelpur í skólanum áttu afmæli og það var hörrku fjör svo máttu strákarnir láta sjá sig aðeins seinna um kvöldið ;) hehe Tók fullt af skemmtó myndum sem ég set inn við tækifæri ;) hehe

 Og núna verða sumir ekkert alltof sáttir að ég sé að segja þessa sögu í örugglega milljónasta skipti ;) hehe eeeeen elskan min þetta var bara so hræðilegt ;) hahaha

Sko...í miðju partýinu skutumst við Kristín inn til mín að pissa....og ég fer á undann og alltí gúddi....en svo kemur Kristín út næstum græn í framan....og segir...Emma...ég vill ekki vera leiðinleg...en villtu sjá þetta ógeð áður en ég drep það....:/ og auðvitað segi ég NEI!

Hehe en so meikaði ég ekki að sjá það ekki....þannig ég kikti inná bað og sirka 30 cm frá klóinu var ÁN ALLS GRÍNS!! Ógeðslegasta og stærsta könguló sem ég hef séð á allri minni æfi!!!

Ég var næstum farin að gráta hún var so stór!! Hahahaha

Og hún var sko svört og loðin með þykkar lappir með hvítar doppur!!! Og Kristín stóð stjörf með inniskóinn minn í sirka 5 mínútur áður en við föttuðum að hún meikaði ekki að drepana...við vorum ekki vissar að inniskórin gæti það!!! :/ hahaha

Þannig við fórum og náðum í innfæddan aðila ;) hahaha og hún hafði heldur aldrei á æfi sinni séð sonna stóra Könguló...og hún Býr hénna!!! Þetta er náttla ekki eðlilegt....

eeen hún drap hana með dvd hulstri og klósettpappír vafið utanum....hehe...þannig núna alltaf þegar ég fer inná bað hjá mér kíki ég með hausnum inn á alla veggi til að tékka á kvort það sé nokkuð könguló ;) hehe og er alltaf skíthrædd þanna inni :/ hehehe  

En já þá er sagan búin ;) hehe 

Í morgun vaknaði ég með soldið kvef og hálsbólgu...;) kemur á óvart...hehe

Og við erum vonandi að fá Diskinn með laginu mínu í þessari viku...það er alltaf að seinka þessu :/ Danir....össs...hehe 

Og já vitiði kva er að gerast næstu við erum að fara á BEYONCÉ tónleika í Aalborg!!! Gegggjað ;) hlakka dáldi ðtil sko ;) 

 Svo erum Kristín, Lilja og Hrannar bara að fara heim eftir 2 vikur...:( ekki gott sko!! Sonna er lífið víst ;)  

En æj ég er að steikjast úr hita ;) hehe nenni ekki meir !!

 En ég sakna ykkar asnalega mikið og hlakka geggjað til að sjá ykkur eftir mánuð á morgun ;) 

Love love love love love

EmmZý ;*


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 11:24:01 / emmabkh

she asks me why, im just a hairy guy...?

Jæææææææææææææææja...ætli það sé ekki kominn tími á eitt stykki blogg... ;) 

 Ákkurat núna er dáldið skrítið veður úti...það er mjög heitt en sammt ekki sól...eða þúst skíað..hehe

Ég er alveg obboslega tóm eithvað...Er að pæla í að koma bara með smá myndablogg hénna ;)  

Margt búið að gerast og sonna...

 

fórum semsagt í dýragarð í Alborg og ég og Atli gjössamlega misstum okkur yfir dýrunum þanna ;)  þetta voru bara einom of krúttleg dýr sko... Atli var sko pinu skotin í Sæljóninu...mwha ;) hehe sumir aparnir voru með ógeðslega ljóta og lafandi rassa :S ojojoj og afsakið..en ég man ekki eftir að Púmba hafi verið sonna ógeðslega ljótur greiið?? humm...       

og sjæse kvað strútar eru findnir!!! hehe (assakið að stafirnir breittust..nenni ekki að laga..)

æjæjæj svo ljótur en sammt eithvað so sætur ;) hehe

alti týndist í afríku þorpinu....

en so fann hann hina eftir smá stund....:) hehe

TÍMON!!! hehehe

MÚFASA!!

ég elska lika pelíkana ;)

so fórum við á SKAGEN...þar var danski fáninn...hehe

rétt hjá var stór viti...merkilegt ha? hehe

so fór ég í skólann attur í nokkra daga ;) og það var obboslega gott veður ;) þetta er hún Sigríður sammt að pósa hénna fyrir okkur fyrir utan skólann ;)

þetta er leiðin niðrí VeriCenter...sem við löbbum nánast á kverjumdegi (skólinn á vinstri hönd ;) hehe )

smá myndir frá Himmelbjarget líka...

oooog Kaupmannahöfn ;) hehe

við fundum Dorí í Kattegatcenter í Grenaa ;)

 

Amelian borg ;) (í lególandi sammt sko...)

Kastali ;) vííí í lególandi líka ;)

Kandíflos!!! aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

Pelíkanaar!!!

gott að fá að vita sonna nauðsinlegar upplýsingar í lególandi...

 Atli var Gleyptur!! í einum munnbita...

stundum held ég að ég sé 5 ára ennþá....:/ hehe

eins og ég segi...mjög fullorðin og þroskuð kona hér á ferðum...ákvað að kíkja aðeins inní fiskabúrið ;) hehe

eeeeeeeeeeeeeen allavega þetta er orðið all svakalega langt....held ég láti þetta duga ;)

:haha:

kem með eithvað skemmtó að segja seinna í vikunni ;) (diskurinn með laginu minu á lika að koma út ílok vikunnar ;) ) 8)

spennó ;) hehe

allavega bæjó í bili sætu rassálfarnir minir ;)

love jú gæs ;)

og komment takk :*

blæjó

Emmzý ;)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 20:39:26 / emmabkh

"Gleðikona í Háska" (eða seint Gleðilega páska,,,)

The miseducated Smootheis (veit ekki alveg kvennig á að skrifa þetta...) en þetta er yndiselga fallega nafnið á hljómsveitinni sem ég er í í skólanum ;) hahaha þetta fannst drengjunum obbbolega findið ;)

 Það var annað kvort þetta eða “Black Buttercats” hahaha æj soldið speees...en ég meina hú kers ;) Bara gaman að þessu ;)

 En heyrðið elskurnar minar...loooksins...var ég að setja inn myndir síðan á Íslandi!! Hehe:/ aaafsakið kva þetta er búið að taka langann tíma...kláraði semsagt Öskubusku myndirnar og svo eru myndir fra djamminu 10.mars á íslandi ;)

 Soo fer að koma allar myndirnar síðan eftir að ég kom aftur út...er búin að taka alvega alltof mikið af essu rugli ;) hehe En það er allt búið að vera á fullu um paskana ;)

 Erum búin að fara á Himmelbjerget og í Kattegatscenter í sædýrasafnið og til Köben! Og shjæse fokkur kvað mig langaði mikið til að VERSLA!!! En Atli Beibý stoppaði mig...hehe ;) þetta var alltof freistandi sko...Atli þurfti nánast að draga mig út á eyrunum úr búðunum ;) hehe 

Svoo fórum við í LEGOLAND í gær ;) geggjað gaman ;) og tók alveg fulllt af myndum og videoum ;) eg er mjööög greinilega ekki orðin rosa fullorðin...:S hehe ég missti mig alveg dáldið þanna...hehe

Og varð alltof æst þegar ég sá bleiku Pelíkananna sem minntu mig á Kristínu ;) hahaha æjæjæj  

Og so byrjaði skólinn aftur í dag;) en svo þarf ég að fá frí á morgun því við erum að fara keyra á Skagen og eithvað meðfram norðvestur ströndinni eins og Pappi sagði að væri so flott ;) hehe

 Það er búið að vera dáldið kallt undanfarna daga...eða síðan rett fyrir helgi...eeen það er spáð 20 stiga hita og bongó blíðu um helgina ;) þannig ég er sátt ;) hehe hlakka til !

 Ég er líka búin að fá Sumarvinnu ;) ég er Verkstjóri í Bæjarvinnunni ;) ég verð líklega yfir sonna dúllerís stelpuhóp (eins og við stelpur vorum alltaf í ;)  ) allavega fer ég beint í að búa til blómakörfurnar þegar ég kem heim ;) sem mér finnst snilld ;)

  Eeen nenni ekki meir í bili ;)

Veriði dúgleg að kommenta pípúl ;)

 Miss jú ;*

  Og ekki gleyma að skoða MYNDIR! Neðst til vinstri ;)  

EmmZý :*


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill